Ungmennaráð Sveitarfélagsins Voga, UNGVOG, hefur hafið störf fyrir starfsárið 2026-2027. Ráðið er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 13-20 ára til að koma skoðunum sínum og hugmyndum á framfæri og hafa áhrif á málefni sem snerta það og nærumhverfi þess.
Tilgangur UNGVOG er að efla lýðræðislega þátttöku ungmenna og stuðla að því að raddir þeirra heyrist og sjónarmið þeirra séu tekin til greina við ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Ráðið hefur það hlutverk að vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni ungs fólks og skapa vettvang fyrir samtal milli ungmenna og bæjaryfirvalda.
Með þátttöku í ráðinu fá ungmenni tækifæri til að kynnast lýðræðislegum vinnubrögðum, taka þátt í umræðum og öðlast reynslu af því að koma hugmyndum sínum og hagsmunamálum á framfæri. Þannig stuðlar starfið að aukinni samfélagslegri þátttöku og eflir tengsl ungmenna við stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Ungmennaráðið fjallar um fjölbreytt málefni sem varða börn og ungmenni, svo sem íþrótta- og tómstundastarf, skólamál, félagslíf og aðstöðu ungs fólks í sveitarfélaginu. Ráðið getur komið með ábendingar og tillögur til bæjaryfirvalda, tekið til umfjöllunar mál sem því eru send og haft frumkvæði að umræðu um málefni sem ungmennum þykja mikilvæg.
Starf ungmennaráðsins er nú komið vel af stað og fulltrúar þess vinna markvisst að því að koma skoðunum, hugmyndum og sjónarmiðum barna og ungmenna í sveitarfélaginu á framfæri.
Nefndarmenn UNGVOG 2026-2027 eru eftirfarandi:
Aljosa Dedeic
Andri Hreinn Davíðsson
Björgvin Dagur Kárason
Emelía Ósk Ragnarsdóttir
Þórunn Sif Kjartansdóttir