Ungmennafélagið Þróttur 90 ára

Ungmennafélagið Þróttur var stofnað í Vogum þann 23. október 1932. Félagið fagnar því 90 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni býður það til afmælisveislu í Tjarnarsal laugardaginn 22. október klukkan 13:00-16:00. Við hvetjum að sjálfsögðu alla bæjarbúa og aðra vellunnara til að mæta, heilsa uppá hið eldhressa afmælisbarn, njóta fjölbreyttrar skemmtidagskrár og fagna saman 90 árum af blómlegu félagsstarfi Ungmennafélagsins Þróttar.