UMFÞ tekur við rekstri íþróttamiðstöðvarinnar

Það er rétt að taka það fram að þessi frétt er ekki aprílgabb þó hún birstist á þessum merka degi.

Á dögunum var skrifað undir samning milli Sveitarfélagsins Voga og Ungmennafélagsins Þróttar um að félagið taki að sér rekstur íþróttamiðstöðvarinnar. Þetta fyrirkomulag tíðkast nokkuð víða hér á landi og hefur víðast hvar gengið með ágætum. 

Viðræður hafa staðið yfir í nokkurn tíma og skrifað var undir samning á dögunum og nú er komið að því að Þróttur taki við. Sveitarfélagið óskar Þrótti til hamingju með þetta og erum við þess fullviss að þetta fyrirkomulag eigi eftir að styrkja bæði starf íþróttamiðstöðvarinna og Þróttar, og þar með allt íþróttalíf í sveitarfélaginu. 

Á meðfylgjandi mynd eru Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar, Guðmundur Stefán Gunnarsson íþrótta- og tómstundafulltrúi, Petra Ruth Rúnarsdóttir formaður Þróttar og Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri saman komin fyrir utan íþróttamiðstöðina eftir að lyklaskipti fóru fram.