Tvö þúsundasti íbúinn í Vogum er Huginn Ari Richter, tæplega tveggja ára drengur, sem nýlega flutti í sveitarfélagið ásamt fjölskyldu sinni. Guðrún bæjarstjóri fór og heilsaði upp á fjölskylduna í gær og bauð þau velkominn í sveitarfélagið með góðum gjöfum til Hugins Ara.
Svo skemmtilega vill til að Huginn Ari er systursonur Alexöndru Lífar Ingþórsdóttur sem eins og margir muna varð þúsundasti íbúi sveitarfélagsins fyrir ríflega 20 árum.

Í tilefni dagsins var tekin mynd af þeim Hugin Ara og Alexöndru Líf ásamt fjölskyldu og Guðrúnu bæjarstjóra. Þetta eru þau Áslaug Ingþórsdóttir og Gunnar Richter og systkinin Ísak Nóel og Eva Maren.
Hjartanlega velkomin í bæinn kæra fjölskylda