Tvær nýjar hleðslustöðvar við þjónustumiðstöð Voga

Nýlega var bætt við tveimur hleðslustöðvum fyrir rafbíla við hús þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins að Iðndal 4.

Fyrir voru tvær stöðvar á svæðinu og eru þær því orðnar fjórar talsins.

Hleðslustöðvarnar eru á vegum Orkusölunnar og bæta aðgengi að hleðsluaðstöðu fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins.