Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Voga 2021

Umhverfisnefnd sveitarfélagsins Voga óskar eftir tilnefningum vegna umhverfisverðlauna 2021.

Ábendingar um snyrtilegar húseignir og garð eða framtak í þágu náttúrunnar, sem vert er að nefndin veiti viðurkenningar fyrir skal senda á sviðstjóra Umhverfis- og skipulagssviðs david@vogar.is

Tilnefningarnar taka til garðræktar, snyrtilegs og fallegs frágangs mannvirkja og góðrar umgengni við náttúruna. Þær geta átt við heimili, fyrirtæki og félagasamtök. Umhverfisviðurkenningar verða veittar á fjölskyldudögum sveitarfélagsins.

Tekið er við tilnefningum til kl. 15.00 mánudaginn 9. ágúst 2021.