Til leigu húsnæði fyrir matvöruverslun

Á fundi sínum þann 2. nóvember sl. samþykkti bæjarráð að auglýsa verslunarhúsnæðið Iðndal 2 til leigu og leita tilboða frá áhugasömum rekstraraðilum. Sveitarfélagið sem eigandi að húsnæðinu vill auka þjónustustig við bæjarbúa og þess vegna kemur eingöngu matvöruverslun til greina.

Um er að ræða 128 fermetra verslunarpláss fyrir matvöruverslun á góðum stað í Sveitarfélaginu Vogum.

Fyrir í sömu byggingu eru skrifstofur sveitarfélagsins, snyrtistofa og sjúkranuddstofa og fyrirhugað er að fleiri þjónustuaðilar munu bætast við á næstunni.

Þá eru sjálfsafgreiðsludælur fyrir eldsneyti á lóð fyrir framan húsnæðið og hraðbanki auk þess sem uppsetning á sjálfvirkri afgreiðslustöð fyrir pakkasendingar er fyrirhugð.

Áhugasömum rekstraraðilum á sviði matvöruverslunar er bent á að hafa samband við Leigumiðlun Suðurnesja sem veitir frekari upplýsingar á skrifstofu sinni að Hafnargötu 90a í Reykjanesbæ, í síma 420 6070 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið eignasala@eignasala.is.

Óskað er eftir tilboðum og skulu þau berast til leigumiðlunarinnar fyrir 23. nóvember 2022.

Frekari upplýsingar er að finna á fasteignavef Vísis.