Þrjú verkefni í Sveitarfélaginu Vogum hljóta rúmlega þrjár milljónir króna úr aukaúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurnesja
Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur lokið aukaúthlutun styrkja fyrir árið 2026 og hlutu þrjú verkefni í Sveitarfélaginu Vogum samtals 3 milljónir króna í styrki. Úthlutunin er ánægjuleg áminning um þann kraft, sköpunargleði og frumkvæði sem býr í samfélaginu á Suðurnesjum og styður við mikilvæga uppbyggingu á sviði menningar, sögu og varðveislu minja.
Tvö verkefni Minjafélags Vatnsleysustrandar fengu styrki við úthlutunina. Annars vegar hlaut verkefnið Skólahúsið Norðurkot styrk að upphæð 1.100.000 krónur. Minjafélag Vatnsleysustrandar hefur frá árinu 2005 unnið ötullega að varðveislu sögu og menningararfs sveitarfélagsins. Skólahúsið Norðurkot á Kálfatjörn, sem í dag hýsir skólaminjasafn, er eitt af mikilvægustu verkefnum félagsins. Styrkurinn verður nýttur til að koma húsinu í betra ástand og tryggja að bæði húsið sjálft og þeir munir sem þar eru varðveittir verði varðir gegn skemmdum.
Hins vegar hlaut verkefnið Vélbáturinn Huginn – viðhald og varðveisla styrk að upphæð 800.000 krónur. Huginn var smíðaður í Danmörku árið 1931 fyrir Útgerðarfélag Vatnsleysustrandarhrepps og er í dag þriðji elsti plankabyggði bátur landsins. Báturinn er friðaður vegna aldurs og menningarsögulegs gildis og telst ómetanleg heimild um sögu sjávarútvegs á Íslandi á 20. öld. Styrkurinn mun stuðla að áframhaldandi viðhaldi og varðveislu þessa merkilega minnisvarða.
Þá hlaut verkefni Fjölskyldusviðs Sveitarfélagsins Voga, Lifandi menning og minjar, styrk að upphæð 1.100.000 krónur. Verkefnið miðar að því að efla menningarlíf í sveitarfélaginu, auka þátttöku íbúa í menningar- og sögutengdum verkefnum og styrkja varðveislu og miðlun menningarminja. Meðal markmiða verkefnisins er að kortleggja menningarminjar í sveitarfélaginu og gera þær aðgengilegri íbúum og gestum með fjölbreyttum miðlunarleiðum.
Sveitarfélagið Vogar fagnar þessum styrkveitingum sem styðja við mikilvæga varðveislu menningararfs, sögu og sjálfsmyndar samfélagsins. Verkefnin þrjú endurspegla fjölbreytileika og metnað þeirra einstaklinga og félagasamtaka sem vinna að því að halda sögu og menningu sveitarfélagsins lifandi fyrir komandi kynslóðir.
Skólahúsið Norðurkot
Vélbáturinn Huginn