Þrettándinn í Vogunum

Jólin voru kvödd með pompi og prakt í Vogunum á Þrettándanum.

Kvenfélagið Fjóla hélt fjörugan dansleik í félagsmiðstöðinni fyrir yngri kynslóðina þar sem krakkarnir dönsuðu og fóru í leiki.

Eftir dansleikinn bauð svo Lionsfélagið Keilir upp á heitt súkkulaði, kaffi og bakkelsi í Lionshúsinu. Skógræktarfélagið Skógfell sá svo um að grilla sykurpúða fyrir íbúa bæjarins.

Grýla og Leppalúði komu við og spjölluðu við börnin. Engum var meint af og allir komust heilir á húfi heim enda hjónin bæði orðin grænkerar og löngu hætt að borða börn.