Tekjutengdur afsláttur af leikskólagjöldum

 

Foreldrar eru minntir á að sækja þarf um tekjutengdan afslátt af leikskólagjöldum fyrir 1. september 2026

Sótt er um í gegnum íbúagátt á heimasíðu Sveitarfélagsins Voga.

 

Afslátturinn tekur gildi í mánuðinum eftir að umsókn berst og gildir einungis eitt skólaár í senn, þ.e. frá 1. september 2026 -31. ágúst 2027.

Afsláttur er veittur af almennu dvalargjaldi, ekki fæði, í samræmi við tekjuviðmið sem Sveitarfélagið Vogar setur.

TEKJUVIÐMIÐ:
Brúttótekjur á ári :
Einstaklingur:
0 til 5.653.506 kr. 40%
5.653.507 kr. til 6.516.409 kr. 20%

Fólk í sambúð:
0 til 7.602.733kr. 40%
7.602.733 kr. til 9.124.501 kr. 20%