Sumarstörf í Vogum 2019

Eftirtalin sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Sveitarfélaginu sumarið 2019.

Sumarstarf þjónustumiðstöð

Um er að ræða almenn verkamannastörf og vinna á vélum við slátt ásamt fleiru. Starfsmaður verður að hafa bílpróf og geta hafið störf í lok maí. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á vinnutímabilinu.

Umsjónarmaður leikjanámskeiðs

Leitað að einstaklingi til að sjá um námskeið sumarsins. Umsækjendur þurfa að geta skipulagt daglegt starf námskeiðanna og stjórnað ungmennum úr vinnuskóla sem verða til aðstoðar á námskeiðunum. Skilyrði er að umsækjandi sé á 19. aldursári eða eldri.  

Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð

Um er að ræða störf við afgreiðslu, þrif, gæslu á böðum, laugarvörslu og annað tilfallandi. Starfsmaður þarf að standast hæfnispróf sundstaða, vera stundvís og geta unnið undir álagi. Skilyrði er að umsækjandi sé  20 ára eða eldri. Starfsmaður verður að geta hafið störf í júní. Ekki er gert ráð fyrir frítöku á tímabilinu. Unnið er á vöktum.

Félagsmiðstöð og íþróttamiðstöð eru tóbakslausir vinnustaðir.


Umsóknarfrestur fyrir umrædd störf er til 22. mars 2019.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesja.
Námsmenn jafnt sem atvinnuleitendur, karlar og konur eru hvött til að sækja um ofangreind störf.

Nánari upplýsingar um störfin veita: 
Matthías Freyr,  Íþrótta- og tómstundafulltrúi í síma 866-9538. 
Héðinn, Forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 699-3000.
Vignir, Forstöðumaður umhverfis og eigna í síma 893 6983.

Umsókn sendist rafrænt á matthias@vogar.is.