Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð

Sumarafleysingar í íþróttamiðstöð

 

Íþróttamiðstöðin í Vogum auglýsir eftir umsóknum í störf við sumarafleysingar. Um er að ræða 1 stöðu karlkyns baðvarðar og 2 stöður kvenkyns baðvarða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf fljótlega og starfað í allt sumar, þ.e.a.s. fram í seinni parts ágúst mánaðar. Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi.

Viðkomandi þarf að geta staðist sundpróf baðvarða.

Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 19. maí 2020. Fyrirspurnir og umsóknir berist til Héðins Ólafssonar forstöðumanns íþróttamannvirkja á póstfangið hedinn@vogar.is