Stuðningur félagsþjónustu við íbúa Sveitarfélagsins Voga

Starfsfólk félagsþjónustu Suðurnesjabæjar og Sveitarfélagsins Voga hefur staðið vaktina síðustu vikur til að mæta þeim miklu áskorunum sem velferðarþjónustan stendur frammi fyrir á þessum krefjandi tímum.

Þjónustustofnunum hefur verið lokað eða þjónusta skert og þar með nauðsynlegt að útbúa einstaklingsmiðaðar lausnir fyrir þjónustuþega. Félagsstarf aldraðra hefur legið niðri síðan 9. mars, tilmælum beint ti gesta um að takmarka gestakomur í Álfagerði og undanfarnar tvær vikur hefur ekki verið framreiddur matur þar en eldri borgarar fá senda matarbakka úr grunnskólanum og verður það fyrirkoumlag áfram.

Starfssemi heimaþjónustunnar hefur haldist nánast óskert en þar er félagslegri heimaþjónustu sinnt ásamt aðstoð við búðarferðir og öryggisinnlit.

Starfsfólk hefur síðustu daga og vikur unnið að því að hringja í þjónustuþega til að fylgjast með stöðu mála og líðan.

Þessa dagana er starfsfólk að sinna úthringiverkefni sem snýr að því að hringja í alla eldri borgara 85 ára og eldri í Suðurnesjabæ og Vogum.

Sveitarfélagið Vogar hvetur eldri borgara til að huga vel að næringu sinni, hreyfingu og svefn á þessum tíma. Þá eru fjölskyldur hvattar til að standa saman og aðstandendur aldraðra til að huga vel að þeim.

Félagsráðgjafar sinna viðtölum í síma og í fjarfundum og hægt er að hafa samband í síma 425-3000 (Suðurnesjabær), 440-6299 (Sveitarfélagið Vogar) eða á netfang sveitarfélagsins skrifstofa@vogar.is

Við erum öll almannavarnir