Stuðningsfjölskylda óskast

Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir samstarfi við einstaklinga og fjölskyldur til að gerast stuðningsfjölskylda fyrir börn með fötlun

Helstu verkefni stuðningsfjölskyldna eru að taka reglubundið á móti barni í dvöl og að leyfa því að taka þátt í daglegu fjölskyldulífi. Tilgangur með stuðningsfjölskyldu er að draga úr álagi á heimili barna, veita þeim tilbreytingu og stuðning auk þess að gefa þeim kost á auknum félagslegum tengslum. Algengast er að barn dvelji hjá stuðningsfjölskyldu eina til tvær helgar í mánuði.

 

Hæfniskröfur

  • Góðar heimilisaðstæður
  • Hreint sakavottorð
  • Heilbrigðisvottorð
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Áhugi og reynsla af vinnu með börnum

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sóley Gunnarsdóttir í síma 425-3000 (Fjölskyldusvið) eða í tölvupósti á soley@sudurnesjabaer.is