Starf í íþróttamiðstöð

Íþróttamiðstöðin í Vogum auglýsir eftir umsóknum um starf karlkyns baðvarðar. Um er að ræða framtíðarstarf og þarf viðkomandi að geta hafið störf fljótlega. Unnið er eftir vaktafyrirkomulagi.

Skilyrði:

18 ára aldurstakmark.

Viðkomandi þarf að geta staðist sundpróf baðvarða.

Reynsla af sambærilegu starfi er kostur.

Umsóknarfrestur er til og með 3. september 2020. Fyrirspurnir og umsóknir berist til Héðins Ólafssonar forstöðumanns íþróttamannvirkja á póstfangið hedinn@vogar.is