Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hafnaði á fundi sínum 13. nóvember sl. öllum tilboðum sem bárust í stækkun Heilsuleikskólans Suðurvalla, en þau voru töluvert yfir kostnaðaráætlun. Áfram er unnið að lausn til að fjölga leikskólarýmum til skamms tíma en ekki liggur fyrir tímasetning um opnun nýrra deilda.
Útboðið tók til kaupa og uppsetningar færanlegra húseininga fyrir þrjár leikskóladeildir ásamt starfsmannaaðstöðu. Tilboðsfrestur rann út 5. nóvember og niðurstöður útboðsins voru lagðar fyrir bæjarráð til ákvörðunar um framhald verkefnisins.
Í nýlegri umfjöllun Víkurfrétta hefur verið greint frá samþykkt bæjarstjórnar á allt að 351 fermetra stækkun Suðurvalla. Sú samþykkt laut að afgreiðslu áformanna að lokinni grenndarkynningu. Með henni var því ekki verið að samþykkja tilboð í framkvæmdina eða ákveða hvenær nýtt húsnæði yrði tekið í notkun.
Í kjölfar niðurstöðu útboðsins hefur bæjarstjóra verið falið að vinna áfram að lausn í samráði við sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs og starfshópi um stækkun leikskólans. Leggja á tillögu fyrir bæjarráð þar sem útfærsla, kostnaður og tímasetningar liggja fyrir. Jafnframt verður aflað upplýsinga um stöðu leik- og grunnskólalóðar í Grænuborgarhverfi.
Þörfin fyrir fleiri leikskólarými er brýn og sveitarfélagið gerir sér grein fyrir þeirri óvissu sem biðin skapar fyrir fjölskyldur. Áhersla er lögð á að finna raunhæfa leið til að fjölga rýmum sem fyrst og tryggja góða aðstöðu fyrir börn og starfsfólk. Foreldrar og aðrir íbúar verða upplýstir um gang málsins eftir því sem vinnunni miðar áfram.