Skynvæni klúbburinn hlaut styrk frá Blue Car Rental

Félagsmiðstöðin Boran hlaut á dögunum 1.400.000 króna styrk frá Blue Car Rental til uppbyggingar og eflingar á Skynvæna klúbbnum.

Núna í ár söfnuðust 39 milljónir króna á Góðgerðarfest Blue Car Rental. Alls bárust 116 styrkumsóknir og voru 33 verkefni valin til styrkveitingar.

Skynvæni klúbburinn er sérúrræði innan Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar fyrir börn með skynúrvinnsluvanda á aldrinum 13-18 ára. Markmið starfsins er að skapa rólegt, öruggt og fyrirsjáanlegt umhverfi þar sem börnin geta tekið þátt í félags- og tómstundastarfi á eigin forsendum. Áhersla er lögð á að mæta ólíkum þörfum barnanna, efla félagsleg tengsl og skapa aðstæður þar sem þeim líður vel.

Styrkurinn mun nýtast til frekari uppbyggingar á starfinu, meðal annars með kaupum á búnaði og efniviði sem styður við skynvænt og aðgengilegt umhverfi. Styrkurinn veitir jafnframt aukið svigrúm til að þróa starfið áfram og festa það enn frekar í sessi.

Kamilla Huld Jónsdóttir, forstöðukona Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar, og Særún, þátttakandi í Skynvæna klúbbnum, tóku við styrknum fyrir hönd starfsins.

Félagsmiðstöðin Boran færir Blue Car Rental innilegar þakkir fyrir veglegan styrk og stuðning við verkefnið. Styrkurinn mun skipta miklu máli fyrir áframhaldandi þróun Skynvæna klúbbsins og stuðla að því að fleiri börn fái tækifæri til þátttöku í tómstundastarfi sem tekur mið af þeirra þörfum.

 


Særún Birgisdóttir, þátttakandi í Skynvæna klúbbnum (3. t.v.) og Kamilla Huld Jónsdóttir, forstöðukona Félagsmiðstöðvar Borunnar (4. t.v.) taka á móti styrknum ásamt forsvarsfólki Blue Car Rental.