Skrifstofa sveitarfélagsins lokuð

Skrifstofa Sveitarfélagsins Voga verður lokuð fyrir heimsóknum frá 5. - 16. október vegna hertra sóttvarnarreglna og aukinnar smithættu. Starfsfólk mun þó áfram sinna sínum störfum og hægt verður að panta viðtalstíma við þá. 

Þeim sem þurfa að leita til skrifstofu er bent á að hringja eða senda tölvupóst og ef nauðsynlegt reynist að hittast þá mun starfsfólk sveitarfélagsins útvega mönnum viðtalstíma.