Skólastarf Stóru-Vogaskóla skv. reglugerð 1. nóvember

Starfsfólk Stóru-Vogaskóla hefur sent frá sér tillögur sínar að starfsemi skólans samkvæmt nýrri reglugerð um varnir gegn COVID-19 og má kynna sér þær nánar á COVID-s´ðu sveitarfélagsins og heimasíðu skólans.

Þriðjudaginn 3. nóvember hefst skólastarf eftir þessum reglum. Aðgerðinar eru til og með 17. nóvember.

  • Nemendur í 1.-4. bekk mæta kl. 8:00 -13:00. Þeir eru undanþegnir grímuskyldu og fjarlægðartakmörkunum og getum við því boðið þeim upp á nokkuð hefbundið skólastarf. Ekki verða kenndar íþróttir og sund en nemendum boðið upp á hreyfingu daglega. Nemendur mæta með nesti og fá hádegismat eins og venjulega. Frístund verður á sínum stað frá kl. 13:00-17:00.
  • -10. bekkur mæta kl. 8.00 – 11:00 með grímur. Skipulag er breytt á eldra stigi með áherslu á bóklegar greinar og aukið heimanám. Nemendur mæta með nesti en ekki verður boðið upp á hádegismat.
  • Nemendur mæta inn um sína innganga og grímuskylda er í skólabíl.
  • Gestakomur í skóla eru óheimilar og foreldrar koma ekki inn í skólabyggingu heldur afhendi börn sín við útidyr í viðkomandi starfshólfi.
  • Á heimasíðu Stóru-Vogaskóla eru uppfærðar fréttir sem og í tölvupósti.