Skilafrestur framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Vogum 16. maí 2026
Framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn eigi síðar en kl. 12 föstudaginn 10. apríl 2026.
Tekið er á móti framboðslistum á milli kl. 11-12 þennan sama dag, á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2.
Mælst er til að framboðsgögnum sé skilað á tölvutæku formi.
Leiðbeiningar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram lista:
- Framboðslisti skal tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðenda, kennitölu þeirra, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á því hverjir eru í kjöri.
- Skrifleg yfirlýsing frambjóðenda um að þeir hafi samþykkt að vera á listanum.
- Gæta skal að reglum um hámarks- og lágmarksfjölda á lista.
- Listi með a.m.k. 40 meðmælendum þarf að fylgja. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili. Hægt að skila inn rafrænum meðmælum á www.island.is
Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista.
- Tilnefna þarf tvo umboðsmenn.
- Tilgreina ber nafn framboðs.
- Heimilt er að skila inn með listanum beiðni um tiltekinn listabókstaf.
Frekari upplýsingar fyrir framboð um gögn og eyðublöð má finna á www.kosning.is