Þriðjudaginn 17. mars sl. var haldinn opinn íbúafundur í Tjarnarsal um mótun nýrrar íþrótta- og tómstundastefnu Sveitarfélagsins Voga. Fundurinn, sem stóð frá klukkan fimm til hálf sjö, var vel sóttur og sköpuðust líflegar umræður meðal þátttakenda.
Hólmfríður sviðsstjóri setti fundinn og kynnti Kamillu forvarnarfulltrúa og Ástu Maríu verkefnisstjóra heilsueflandi samfélags sem stýrðu dagskránni, en uppbygging fundarins var sú að íbúar skiptu sér í hópa og unnu saman að átta borðum í fjórum lotum, hvert borð með sínar spurningar og sín viðfangsefni. Þannig fengu sem flestir rödd.
Umræðurnar snérust um fjögur meginþemu: aðgengi og fjölbreytni í íþróttum og tómstundum, uppbyggingu heilsueflandi samfélags, barnvænt umhverfi fyrir börn og ungmenni, og gæði frístundastarfs. Spurt var meðal annars hvernig megi tryggja að íþrótta- og tómstundastarfsemi sé öllum opin, óháð efnahag eða getu, og hvað sé hægt að gera til að fleiri fullorðnir og eldri íbúar taki virkan þátt.
Í hléi gæddu þátttakendur sér að samlokum og safa frá Lemon áður en hópavinna hófst að nýju. Ásta María lokaði dagskránni með lokaorðum um mikilvægi þess að við öll tökum sem virkastan þátt í viðburðum og byggjum saman upp heilsusamlegt og skemmtilegt samféleg.
Sveitarfélagið þakkar öllum sem mættu og leggur áherslu á að hugmyndir og tillögur íbúanna muni hafa bein áhrif á þá stefnu sem verður mótuð.


