SamFest 2026

Föstudagskvöldið 8. maí fóru tuttugu ungmenni frá Vogum á SamFest 2026 í Laugardalshöll. Sex starfsmenn fylgdu hópnum og var farið saman með rútu til og frá viðburðinum. Ferðin gekk mjög vel og hópurinn var til fyrirmyndar.

SamFest er einn stærsti viðburður félagsmiðstöðva á landinu en í ár mættu um 4.500 ungmenni frá 104 félagsmiðstöðvum. Viðburðurinn er tóbaks-, áfengis- og vímuefnalaus og mikil áhersla er lögð á öryggi, góða upplifun og skemmtun ungmenna.

Á stóra sviðinu komu fram Tónhylur, Alaska1867, Páll Óskar, Auddi og Steindi, DJ Ragga Holm og DJ Dóra Júlía. Stemningin var mjög góð og ungmennin skemmtu sér vel.

Áður en farið var á SamFest höfðu ungmennin setið Sjúkást-fræðslu Stígamóta í skólanum þann 27. apríl. Þar var meðal annars fjallað um samskipti, virðingu og mörk. Fræðslan gekk vel og var góður undirbúningur fyrir viðburðinn.

Ungmennin komu ánægð heim eftir vel heppnað og skemmtilegt kvöld.

Starfsfólk Borunnar í góðum gír