Samfélagið í Vogum njóti ávinnings af bata í rekstri og þjónusta eflist í stækkandi bæ

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum í gær fjárhagsáætlun næsta árs og þriggja ára áætlun 2026-2029. Samkvæmt fjárhagsáætlun næsta árs er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða A og B hluta verði jákvæð um 168 milljónir króna og veltufé frá rekstri um ríflega 340 milljónir króna, eða sem nemur 11,4% af áætluðum heildartekjum ársins.

Traustari rekstur eftir tímabil fjárhagsþrenginga og aðhalds í rekstri

Í ávarpi Guðrúnar P. Ólafsdóttur, bæjarstjóra, í greinargerð með fjárhagsáætlun kemur fram fjárhagsáætlun sveitarfélagsins endurspeglar traustari rekstur eftir tímabil fjárhagsþrenginga og aðhalds í rekstri. Hagræðingu í rekstri verður skilað til íbúa í formi lækkunar fasteignaálaga og eflingar þjónustu. Áfram verður unnið að uppbyggingu atvinnulífs í sveitarfélaginu með það að markmiði að tryggja tekjustofna og fjölga atvinnutækifærum í heimabyggð. Sérstök áhersla verður lögð á Keilisnes í því samhengi. Ábyrgð og festa í rekstri skapar þannig grunn að enn öflugri þjónustu í samfélaginu sem og grunn varðandi uppbyggingu innviða í stækkandi sveitarfélagi.

Í greinargerð með fjárhagsáætlun er að finna þá nýlundu í ár að dregnar eru saman helstu áherslur í starfseminni 2026.

Greinargerðina má finna hér 

Fjárhagsáætlun 2026-2029 má finna hér

Næstu daga munu einstök atriði varðandi starfsemi sveitarfélagsins verða kynnt hér á vefnum.