Saga hafbeitarstöðvarinnar Vogalax á léttum nótum í Álfagerði

Viðstaddir hlusta átekta.
Viðstaddir hlusta átekta.

Saga hafbeitarstöðvarinnar Vogalax á léttum nótum í Álfagerði

Síðasta fimmtudagsfræðslan á þessu vori var í boði Guðlaugs Rúnars Guðmundssonar sem kom og fræddi viðstadda um tilurð og líftíma Hafbeitarstöðvarinnar Vogalax undir Vogastapa þar sem nú er Benchmark. Ævintýralegir tímar frá 1982-1994 þar sem margir Vogabúar komu að og unnu með einum eða öðrum hætti.

Hún Día lumaði á uppskrift að dýrindis tertu frá móður Gulla sem hún skellti í og fór ljúflega í mannskapinn. Þetta var virkilega fjölmenn samvera og virkilega gaman hve vel fimmtudagsfræðslan hefur heppnast. Undirbúningur fyrir haustið er strax hafinn og nokkrar góðar tillögur að erindum komnar á blað en endilega hikið ekki við að gauka fleirum að henni Díu (umsjónarkonu félagsstarfs aldraðra).