
Rafrænt meðmælakerfi vegna sveitarstjórnarkosninga í Sveitarfélaginu Vogum 16. maí 2026
Framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn eigi síðar en kl. 12 föstudaginn 10. apríl 2026.
Skil framboða og meðmæla
Kjörstjórn óskar eftir að framboðsaðilar nýti rafrænt meðmælakerfi á www.kosning.is til að safna og skrá meðmæli með framboðslista.
Tekið er á móti framboðslistum á milli kl. 11-12 þann 10. apríl á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2.
Skilyrði framboðslista
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 7 nöfn og að hámarki 14.
Framboðslista skal fylgja
Um nánari skilyrði og framkvæmd fer samkvæmt ákvæðum kosningalaga nr. 112/2021.
Nánari upplýsingar fyrir þá sem hyggjast bjóða fram er að finna á www.kosning.is
Kjörstjórn Sveitarfélagsins Voga