Óvissustigi lýst yfir

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Jarðskjálftahrina hófst uppúr hádegi í dag 30. júlí og er enn í gangi. Veðurstofa Íslands hefur sett Krýsuvík á gult vegna flugumferðar en mesta virknin er NA við Fagradalsfjall.

Íbúar eru hvattir til þess að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að ekki geti fallið lausamunir á fólk í svefni. Veðurstofa Íslands hefur einnig vakið athygli á því að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því er gott að sýna aðgát við brattar hlíðar.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila. Á óvissustigi fara viðbragðsaðilar og stofnanir yfir áætlanir sínar og viðbúnað.