Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir

Tilkynning frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum:

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu við Fagadalsfjall. Jarðskjálftahrinan hófst 21. desember og stendur enn yfir.

Óvissustig almannavarna þýðir að aukir eftirlit er haft með atburðarrás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.