Óskum eftir umsóknum í Vinnuskólann

Vinnuskóli Voga verður starfandi í sumar fyrir ungmenni í 8. til 10. bekk og fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla. Umsóknarfrestur er til 12 .maí. Ekki verður tekið við skráningum eftir það.

Yfirflokkstjóri Vinnuskólans er Ellen Lind, sími: 855-6234. Öll erindi varðandi Vinnuskólann, fyrir utan launamál, skal beina til hennar. Upplýsingar um launamál veitir Hanna Lísa Hafsteinsdóttir verkefnastjóri á umhverfis og skipulagssviði. 

Umsóknir skilast á rafrænu formi í gegnum íbúagátt sveitarfélagins.

Nánari upplýsingar er að finna í Handbók Vinnuskólans 2023