Óskað er eftir tilnefningum til íþróttamanns ársins og til hvatningaverðlauna.

Íþróttamaður ársins verður að vera búsettur í Vogum eða keppa fyrir hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu. Tilnefndir íþróttamenn skulu vera orðnir 16 ára eða eldri. Heimilt er að nefna ungling 14-16 ára sem keppir í flokki fullorðinna og hefur náð það góðum árangri að hann teljist á meðal þeirra bestu í sinni íþróttagrein.

Hvatningaverðlaun hlýtur einstaklingur eða einstaklingar sem eru framúrskarandi í ástundun, áhugasemi, hegðun innan vallar sem utan og er góður félagi og fyrirmynd annarra barna og unglinga. Öllum íþróttafélögum og einstaklingum í Vogum er heimilt að tilnefna til hvatningaverðlauna.

Allar tilnefningar skulu vera rökstuddar. Íþróttamaður ársins í Vogum hlýtur við útnefningu, farandbikar til eins árs og bikar til eignar.

 

Tilnefningar ásamt rökstuðningi sendast á gudmundurs@vogar.is eða í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu, stílað á íþrótta- og tómstundafulltrúa, fyrir 20. desember.

 

Reglugerð vegna kjörs á íþróttamanni ársins í  sveitarfélaginu Vogum