Óskað eftir tilnefningum til menningarverðlauna Sveitarfélagsins Voga 2026

Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga óskar eftir tilnefningum til menningarverðlauna sveitarfélagsins fyrir árið 2026.
Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal þann 17. júní nk.

Verðlaunin eru veitt einstaklingi eða félagi sem hefur með framlagi sínu auðgað menningar- og félagslíf í sveitarfélaginu á eftirtektarverðan hátt. Þetta getur verið í gegnum viðburði, verkefni, sjálfboðastarf eða aðra þátttöku sem stuðlar að fjölbreyttu og lifandi menningarlífi í Sveitarfélaginu Vogum.

Hægt er að tilnefna bæði einstaklinga og félög. Með hverri tilnefningu þarf að fylgja stutt greinargerð sem lýsir starfi og áhrifum viðkomandi undanfarin ár.

Tilnefningum skal skila í tölvupósti til sviðsstjóra fjölskyldusviðs á netfangið holmfridur.j.arnadottir@vogar.is fyrir 30. apríl 2026.

Reglur um menningarverðlaun

 

Rafn Sig. handhafi menningarverðlauna Sveitarfélagsins Voga árið 2025