Opnunartími skrifstofu UMFÞ um jól og áramót

Yfir hátíðarnar verður skrifstofa Ungmennafélagsins Þróttar lokuð frá og með 22. desember og opnar aftur 4. janúar 2021.

Opnunar– og afgreiðslutími verður sem hér segir:

· 18. desember: Opið frá kl. 9-12

· 21. desember: Opið frá kl. 9-12

· 4. janúar: Opið frá kl. 9-17

Síðasti dagur æfinga í barna og unglingastarfinu fer fram miðvikudaginn 16. desember. Æfingar hefjast aftur þriðjudaginn 5. janúar.

Við vekjum athygli á því að einhverjir þjálfarar eru með aukaæfingar eða aðra viðburði á milli 17. desember og 5. janúar. Biðjum foreldra að fylgjast vel með öllum þeim upplýsingum sem koma frá þjálfurum.