Opið fyrir umsóknir í Startup Landið

 

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í hraðalinn Startup Landið fyrir nýsköpunarhugmyndir á landsbyggðunum. Hraðallinn hefst 18. september og lýkur með lokaviðburði 30. október þar sem þátttakendur kynna verkefni sín.

Startup Landið veitir þátttakendum aðgang að sérfræðiráðgjöf, tengslaneti og möguleikum á fjármögnun. Markmiðið er að styðja við vöxt og þróun nýsköpunarverkefna sem eru komin af hugmyndastigi, hvort sem þau eru unnin af einstaklingum, sprotafyrirtækjum eða innan rótgróinna fyrirtækja.

Hvað býður hraðallinn upp á?

  • Aðgang að reynslumiklum leiðbeinendum, frumkvöðlum og fjárfestum
  • Vinnustofur og fræðslufundi
  • Tækifæri til að byggja upp öflugt tengslanet
  • Tvær staðbundnar vinnustofur með þátttöku allra teyma
  • Mestu leyti rafrænt fyrirkomulag sem hentar þátttakendum um allt land

Hverjir geta sótt um?

Leitast er eftir frumkvöðlum, sprotafyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum á landsbyggðunum sem eru komin af hugmyndastigi og vilja þróa verkefnið sitt áfram með stuðningi sérfræðinga og tengslanets.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar má finna hér.

Startup Landið er samstarfsverkefni allra landshlutasamtakanna: SSNE, SSNV, Vestfjarðarstofu, Austurbrúar, SASS, SSS og SSV.

Frekari upplýsingar veitir Dagný Maggýjar verkefnastjóri Heklunnar, atvinnuþróunarfélags Suðurnesja hjá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum dagny@heklan.is. Sjá nánar á startuplandid.is