Opið fyrir skráningu í Vinnuskólann 2020

Vinnuskólinn er fyrir 14-17 ára ungmenni fædd árin 2003, 2004, 2005 og 2006, þ.e. fyrir 8. til 10. bekk og fyrsta árs nemendur í framhaldsskóla.

Aðeins verður tekið við rafrænum skráningum og mikilvægt er að fylla skráningarformin út samviskusamlega. Til að umsókn teljist gild þurfa foreldrar/forráðamenn einnig að senda inn staðfestingu á umsókn og að reglur Vinnuskólans hafi verið lesnar og yfirfarnar.

Skal sú staðfesting foreldris/forráðamanns vera send á netfang Íþrótta- og tómstundafulltrúa: matthias@vogar.is

Starfsreglur Vinnuskólans

 

Skráningu lýkur föstudaginn 7. maí.

 Skráning í Vinnuskóla Sveitarfélagins Voga