Nýtt sorphirðudagatal og pokastandur í íþróttamiðstöðinni

Innleiðing á nýju flokkunarkerfi úrgangs, þar sem flokkað er í fjóra flokka, hefur farið mjög vel af stað. Íbúar hafa tekið vel í aukna flokkun og sjáum við góðar heimtur bæði á endurvinnsluefnum og lífrænum eldhúsúrgangi.

Stand með pokum fyrir lífrænan úrgang má nú finna í íþróttamiðstöðinni og geta íbúar náð sér í poka þar endurgjaldslaust. 

Hirðan á tunnum við heimili er nú komin á áætlun og er uppfært dagatal nú tilbúið fyrir íbúa, það má nálgast hér Sorphirðudagatal

Við minnum á að tunnur við heimili eru tæmdar eins og hér segir:

  • Blandaður úrgangur á 14 daga fresti
  • Lífrænn eldhúsúrgangur á 14 daga fresti
  • Pappír / Pappi á 28 daga fresti
  • Plastumbúðir á 28 daga fresti

Ef íbúar eru að lenda í að tunnur við heimilin fyllist fyrr bendum við á að hægt er að notast við grenndarstöðvarnar fyrir þá flokka sem tekið er á móti þar sem og móttökuplön Kölku, sem taka á móti öllum úrgangi.