Nýr meirihluti tekur við í Sveitarfélaginu Vogum

D og E listi hafa myndað nýjan meirihluta fyrir kjörtímabilið 2022 – 2026. Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verður haldinn miðvikudaginn 8. júní n.k., þar sem kosinn verður forseti bæjarstjórnar ásamt því að kosið verður í nefndir og ráð.

Ásgeir Eiríksson fráfarandi bæjarstjóri hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í starfið að nýju, og mun því verða lögð fram tillaga á fyrsta fundi bæjarstjórnar um að starf bæjarstjóra verði auglýst.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þá Björn Sæbjörnsson (t.v.) oddvita D-lista og Birgi Örn Ólafsson, oddvita E-lista, handsala samkomulagið.