Á 250. fundi Bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga þann 6. október sl. voru samþykktar nýjar reglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá sveitarfélaginu.
Markmið reglnanna er að auka gagnsæi og bæta upplýsingagjöf til íbúa.
Reglurnar eru nú aðgengilegar hér á vef sveitarfélagsins undir lið Stjórnsýslu - Stefnur, reglur og samþykktir eða hér:
Verklagsreglur um ritun fundargerða og birtingu fundargagna hjá Sveitarfélaginu Vogum
Í bókun bæjarstjórnar kemur fram að reglurnar séu liður í því að gera fundargerðir og fundargögn bæjarstjórnar og fastanefnda aðgengileg almenningi og auðvelda íbúum að fylgjast með störfum sveitarfélagsins.
Allar fundargerðir eru áfram birtar á forsíðu vefsins eða hér:
Fundargerðir Sveitarfélagsins Voga