Nýbreytni á vef Sveitarfélagsins Voga

Við viljum vekja athygli á nýbreytni á vef sveitarfélagsins en nú er búið að setja inn hlekki á upptökur af fundum bæjarstjórnar inn í fundargerðir á heimasíðunni. 

Eins og mörgum er kunnugt um hafa fundir bæjarstjórnar að undanförnu farið fram á fjarfundum og verið teknir upp og upptökur aðgengilegar á Youtube rás sveitarfélagsins. Síðasti fundur bæjarstjórnar var svo sendur út í beinni útsendingu og var það í fyrsta sinn sem það er gert í sveitarfélaginu. 

Allar fundargerðir nefnda sveitarfélagsins eru aðgengilegar á heimasíðunni og nú er búið að bæta við tengli á upptökur af þeim bæjarstjórnarfundum sem hafa verið teknir upp, inn í fundargerðirnar.