Neyðarstjórn virkjuð í Vogum

Neyðarstjórn Sveitarfélagsins Voga var virkjuð og kom saman í kvöld til að fara yfir stöðuna og þær upplýsingar sem nú þegar liggja fyrir um eldgosið sem hófst fyrr í kvöld.

Bendum við íbúum að fylgjast vel með upplýsingagjöf á vef Almannavarna: Almannavarnir og er hægt að fylgjast með loftgæðum m.a. í Vogum á vef Umhverfisstofnunar: https://loftgaedi.is/