Námskeið í sáningu krydds, matjurta og sumarblóma - Course in sowing spices, vegetables and summer flowers - Kurs siewu przypraw, warzyw i kwiatów letnich

Námskeið í sáningu krydds, matjurta og sumarblóma - Course in sowing spices, vegetables and summer flowers - Kurs siewu przypraw, warzyw i kwiatów letnich

Þriðjudaginn 14. apríl frá 16:30 – 18:30 fáum við Auði I. Ottesen garðyrkjufræðing og fyrrverandi ritstjóra tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn með námskeið til okkar um sáningu matjurta, krydds og sumarblóma. Námskeiðið verður haldið í Álfagerði.

Á námskeiðinu fjallar Auður á sinn skemmtilega og fræðandi hátt um fræúrvalið sem býðst á sölustöðum, sáninguna og ræktun fram að útplöntun. Mörgum tegundum er sáð í mars og apríl og sumum tegundum er sáð beint út í beð í maí. Hitastig, birta og næring eru lykilinn að góðri ræktun og fer Auður vel yfir þá þætti auk þess að vera með smá verklegt og fá þátttakendur smá með heim til framhaldsræktunar.

Garðverkin geta sannarlega verið gefandi iðja og uppskeran er fyrirheit um blómríkt og fallegt sumar. Námskeiðið er í boði verkefnissins Saman í samfélagi og því frítt fyrir þátttakendur. Veitingar í boði.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!