Minnum á umferðaröryggishnappinn

Á forsíðu heimasíðu okkar er að finna hnapp sem sem heitir umferðaröryggi og má þar sjá umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins 2023-2026. Jafnframt er þar, upp í hægra horninu, hægt að senda inn ábendingar um það sem betur má fara í umferðaröryggismálum innan sveitarfélagsins. Hvetjum við íbúa til þess að notfæra sér þetta, því saman gerum við bæinn betri.

Jafnframt er hægt að fara beint inn á umferðaröryggisáætlunina hér.