Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa var haldinn með hefðbundnu sniði sunnudaginn 15. nóvember sl. Falleg athöfn fór fram við Landspítalann í Fossvogi og haldnar voru minningarstundir á að minnsta kosti sautján stöðum víðs vegar um landið í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg en þar gegndu unglingadeildir björgunarsveitanna ríku hlutverki.

Í ár var sjónum sérstaklega beint að ungu fólki í umferðinni og hættunni sem fylgir hraðakstri. Þótt margt hafi áunnist í umferðaröryggi ungs fólks undanfarna áratugi sýna nýlegar vísbendingar að brýnt er að vinna gegn áhættuhegðun og hraðakstri meðal ungra ökumanna.

Minningardagurinn gefur okkur mikilvægt tækifæri til að minnast þeirra sem hafa látið lífið, sýna þeim stuðning sem lifa með afleiðingum umferðarslysa alla tíð, heiðra viðbragðsaðila og minna okkur öll á hvað við getum gert til að koma í veg fyrir slys.

Að baki minn­ing­ar­deg­inum standa Samgöngu­stofu, Innviða­ráðu­neytið, Sjálfs­björg, Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg, Neyð­ar­línan, Lögreglan, Vega­gerðin og ÖBÍ

Förum ávallt varlega í umferðinni.