Mikilvæg málefni rædd á Ungmennaþingi UNGVOG

Ungmennaþing UNGVOG var haldið föstudaginn 24. apríl síðastliðinn. Þingið var vel sótt en þar komu saman um 30 ungmenni frá 7.-10. bekk og 1. ári í framhaldsskóla til að ræða málefni sem skipta þau máli og fá tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri.

Á þinginu voru flutt fjölbreytt og áhugaverð erindi sem snertu meðal annars þátttöku ungmenna, mikilvægi þess að tilheyra, aðgengi, áhrif skjánotkunar, líðan ungs fólks og menntun í barnvænu sveitarfélagi. Krakkarnir í ungmennaráði UNGVOG fluttu erindi, auk þess sem Hólmfríður, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, og Sölvi frá UNICEF voru með erindi fyrir ungmennin.

Ungmennin tóku virkan þátt í umræðum, svöruðu spurningum og deildu hugmyndum sínum og upplifun. Mikilvægt er að skapa vettvang þar sem raddir ungmenna heyrast og þau fá tækifæri til að hafa áhrif á sitt nærumhverfi og samfélag.

Að loknu þinginu var boðið upp á pizzur og vængi frá Kim Yong Wings og fengu allir þátttakendur smá glaðning með sér heim. Dagurinn endaði svo á skemmtilegu sundlaugarpartýi í frábæru veðri, þar sem ungmennin áttu góða stund saman eftir vel heppnað þing.

Ungmennaþing UNGVOG tókst afar vel og ljóst er að ungmenni hafa margt mikilvægt fram að færa.