Menntasjóður Sveitarfélagsins Voga - úthlutun 2020 - Síðustu forvöð

Menntasjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Nemendur sem luku öðru ári í framhaldsskóla á tilsettum tíma á skólaárinu sem nú er að ljúka geta sótt um styrki þessa og einnig nemendur sem eru að ljúka framhaldsskóla á skólaárinu á tilsettum tíma. Auk þess eru þeim þremur nemendum sem sýndu bestan námsárangur á lokaprófum í 10. bekk Stóru-Vogaskóla veittur styrkur.
Umsóknarfrestur er til 10. júní, og skal umsóknum skilað til bæjarskrifstofunnar í Iðndal 2.
Með umsókninni skal fylgja staðfest útskrift af námsárangri fyrstu tveggja ára framhaldsskólanáms. Styrkirnir verða afhentir á fundi bæjarstjórnar í lok júní n.k.

Úthlutunarreglur

Umsóknareyðublað fyrir sjóðinn