Mennta-menningar og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga

Mennta, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.

Nemendur sem útskrifuðust úr framhaldsskóla á haustönn 2022 og vorönn 2023, geta sótt um styrk.

Auk þess verður þremur nemendum sem sýndu bestan námsárangur á lokaprófum í 10. bekk Stóru-Vogaskóla veittur styrkur.

Umsóknareyðublað má finna á íbúagátt sveitarfélagsins .

Með umsókninni skal fylgja, í viðhengi, staðfesting frá skóla um að helmingi náms sé lokið eða námi sé lokið með útskrift.

Úthlutunarreglur sjóðsins má nálgast hér.

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2023.