Mennta-menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga.

Mennta-menningar og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga

Mennta, menningar- og afrekssjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Nemendur sem hafa lokið fyrri helmingi frammhaldsskóla, auk þeirra sem útskrifuðust úr framhaldsskóla á haustönn 2018 og vorönn 2019, geta sótt um styrk.

Umsóknareyðublað má finna á íbúagátt sveitarfélagsins
(hnappur á www.vogar.is)
Með umsókninni skal fylgja, í viðhengi, staðfesting frá skóla um að helmingi náms sé lokið eða námi sé lokið með útskrift.

Umsóknarfrestur er til 20. júní  2019.

Auk þess verður þremur nemendum sem sýndu bestan námsárangur á lokaprófum í 10. bekk Stóru-Vogaskóla veittur styrkur.