Menningarverðlaun Sveitarfélagsins Voga 2020 - óskað eftir tilnefningum

Frístunda- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Voga óskar eftir tilnefningum til menningarverðlauna Sveitarfélagsins Voga 2020. Stefnt er að því að veita verðlaunin við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal sumardaginn fyrsta, 23. Apríl næstkomandi en það er þó háð því hvernig ástandið varðandi COVID-19 mun þróast.

Hægt er að tilnefna hvort sem er einstakling eða félag.

Tilnefningu þarf að fylgja stutt greinargerð um viðkomandi einstakling eða félag, um starf og viðburði undanfarin ár og þátt í að auðga menningar- og félagslíf í sveitarfélaginu. Frístunda- og menningarnefnd styðst við þá greinargerð við val og kynningu.

Tilnefningum skal skila til menningarfulltrúa á netfangið daniel@vogar.is fyrir 31. mars.

Reglur um menningarverðlaun má sjá hér: https://www.vogar.is/static/files/Stefnur-reglur-samthykktir/5-Fristunda-og-menningarmal/4_876_reglur-um-menningarverdlaun-i-sveitarfelaginu-vogum..pdf