Menningarverðlaun 2019 – óskað eftir tilnefningum. Síðasti skiladagur.

Frístunda- og menningarnefnd óskar eftir tilnefningum til menningarverðlauna Voga 2019. Verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal sumardaginn fyrsta, 25. Apríl nk. Hægt er að tilnefna hvort sem er einstakling eða félag.

Tilnefningu þarf að fylgja stutt greinargerð um viðkomandi einstakling eða félag, um starf og viðburði undanfarin ár og þátt í að auðga menningar- og félagslíf í sveitarfélaginu. Frístunda- og menningarnefnd styðst við þá greinargerð við val og kynningu.

Tilnefningum skal skila til menningarfulltrúa á netfangið daniel@vogar.is fyrir 15. mars.