Málefnasamningur meirihlutans 2026–2030

Málefnasamningur meirihluta bæjarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030 er aðgengilegur í heild sinni á vefsíðu sveitarfélagsins.

Bæjarfulltrúar D-lista Sjálfstæðisflokks og óháðra, E-lista Strandar og Voga og L-lista Lista fólksins hafa komist að samkomulagi um samstarf á kjörtímabilinu 2026–2030.

Samstarfið byggir á breiðum og sterkum grunni sem lagður var á liðnu kjörtímabili. Meirihlutinn mun horfa fram á veginn með áherslu á traustan rekstur, öfluga þjónustu, skýra forgangsröðun og áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins í góðu samtali við íbúa.

Lögð verður áhersla á gott samstarf kjörinna fulltrúa, nefndarmanna, starfsfólks sveitarfélagsins, íbúa, félagasamtaka og atvinnulífs. Jafnframt verður unnið að auknu gagnsæi, betri upplýsingagjöf og vönduðu vinnulagi í stórum málum sem varða framtíð sveitarfélagsins.

Málefnasamningur meirihlutans 2026-2030 í rafrænu flettiriti

Málefnasamningur meirihlutans 2026-2030 á pdf formi