Malbikun á mislægun gatnamótum Reykjanesbrautar og Vatnsleysustrandarvegar, laugardag 29. júní.

Laugardag 29. júní er stefnt að því að malbika bæði hringtorg á mislægum gatnamótum Reykjanesbrautar og Vatnsleysustrandarvegar.

Gatnamótunum verður lokað og viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp skv. viðhengdu lokunarplani 8.0.43.

 

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 08:00 til kl. 16:00.

 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.