Lokað fyrir heitt vatn 14. júní n.k

 

Fréttatilkynning

 

Lokað verður fyrir heitt vatn vegna endurnýjunar stofnlagnar við dælustöð á Fitjum mánudaginn 14. júní kl. 22:00.
Lokað verður fyrir vatnið í Suðurnesjabæ, Keflavík, Ytri og Innri Njarðvík og Vogum.
Við hvetjum viðskiptavini sem eru með hringrásadælu á hitakerfi að taka þær úr sambandi á meðan að enginn þrýstingur er á kerfinu.

Gert er ráð fyrir að lagnavinnu ljúki um nóttina og að eðlilegur þrýstingur verði kominn á að morgni þriðjudags 15. júní.

Við sendum skilaboð (SMS) og eða tölvupóst á viðskiptavini sem hafa skráð þær upplýsingar hjá okkur.
Skrá má símanúmer og netföng á Mínum síðum HS Veitna, sjá nánar HÉR

Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem af þessu geta skapast.

Sjá frétt inn á heimasíðu fyrirtækisins HÉR